Zen Socks "Hike & Run" – Merino-ull
Hannaðir sérstaklega sem útivistarsokkar og henta vel í utanvegahlaupin og hjólatúrana.
þessir svokölluðu ZEN sokkar er þétt-prjónaðir úr þvegni merino-ull og nylon sem gefur sokkunum teygjanleika og betri endingu. Merino-ullin veitir vel burtu raka og heldur því þægilegu hitastigi á fótunum. Gott rými fyrir tær og hæl en meiri stuðningur utan um rist sem heldur sokknum vel á sínum stað.
Japanska merkið Rototo framleiðir hágæða vefnaðarvörur í Nara héraði í Japan. Byggir framleiðslan mikið á sögulegri handverkshefð svæðisins.
Með samþættingu besta mögulega efnisvals, sjaldgæfs vélabúnaðar og færni handverksfólksins skapar Rototo einstakar vörur.
Vörur sem Japanir álíta að lyfti hversdeginum.
Aðrar upplýsingar
Stærðir
Efni
80% WOOL, 9% NYLON, 8% POLYESTER, 3% POLYURETHANE
Stærð | S | M | L |
CM | 23 - 25 | 25 - 27 | 27 - 29 |
EU skóstærð | 36 - 40 | 40 - 43 | 43 - 46 |