All Weather Sock
VELDU HVAÐA 2 PÖR SEM ER EÐA FLEIRI
OG ÞÚ FÆRÐ 10% AFSLÁTT VIÐ KASSANN
MEÐ KÓÐANUM [SOKKAR]
Hér eru á ferðinni hlaupasokkar frá SOAR Running sem gerðir eru úr hollow-garni sem heldur vel hita og meðhöndlað með vatnsfráhrindandi efni sem kemur í veg fyrir að sokkarnir dragi í sig vatn. Sokkarnir ná upp á miðjan kálfa og fara vel saman við síðar tights eða stuttbuxur en fyrst og fremst hannaðir til að koma þér þægilega í gegnum allar árstíðir af hlaupum.
Þökk sé eiginleikum hollow-garnsins sem virkar sem einangrandi lag af lofti utan um fótinn þá veita þessir sokkar þér velkomna hlýju á dögum þegar kuldinn sækir á. Vatnsfráhrindandi meðferð á efninu vinnur á móti því að sokkarnir dragi í sig raka og þannig kæli og þyngi fæturna. Aukið efni á álagsvæði er í kringum hæl og tær og létt compression teygja er um miðfótinn þar sem hann er grennstur. Þannig haldast sokkarnir vel á sínum stað við hverskonar notkun.
Eiginleikar
Aðrar upplýsingar
Stærðir
-Gerðir úr einangrandi hollow-garni.
-Vatnsfráhrindandi meðferð á efni (DWR-Durable Water Repellent).
-Efni styrkt við hæl og framfót.
-Létt compression í efni utan um miðfót.
Efni
45% PES, 35% PA, 20% EL
Meðhöndlun
Má setja í þvottavél 30°C
Ekki setja í þurrkara
Ekki strauja
Ekki setja í hreinsun
Ekki nota klór
Rétt er að benda á að vegna eiginleika efnisins og mýkt geta myndast smávægilegir hnökrar við notkun sem aftur á móti skerðir ekkert frammistöðu vörunnar.
Skóstærð | S | M | L |
EU |
36 - 40 | 41 - 44 | 45 - 48 |
UK | 4 - 7 | 8 - 10 | 11 - 13 |
US | 5 - 8 | 9 - 11 | 12 - 14 |